Kransæðastífla - hvað svo? : Upplifun karlmanna af því að greinast með kransæðastíflu á besta aldri: Fyrirbærafræðileg rannsókn
Notice bibliographique
Résumé
Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun karlmanna af því að greinast með kransæðastíflu á besta aldri og hvaða áhrif það hefur á líf þeirra og líðan. Markmið rannsóknarinnar var að frásögn karlmannanna af reynslu sinni gæti gagnast þeim, fjölskyldum þeirra og öðrum sem greinast með kransæðastíflu síðar meir svo og heilbrigðisstarfsfólki. Einnig gæti rannsóknin leitt til betri skilnings heilbrigðisstarfsfólks á aðstæðum kransæðasjúklinga. Þannig er ef til vill hægt að stuðla að betri þjónustu og bættum samskiptum. \nBakgrunnur: Kransæðasjúkdómar hafa verið ein algengasta dánarorsök Íslendinga undanfarna áratugi. Meðferð við kransæðasjúkdómum hefur þróast mikið á undanförnum árum, lífslíkur kransæðasjúklinga hafa aukist og lífsgæði þeirra batnað. \nRannsóknarspurningin: Hver er upplifun karlmanna af því að greinast með kransæðastíflu á besta aldri. \nRannsóknaraðferð: Rannsóknin var byggð á eigindlegri aðferð og var unnin samkvæmt Vancouver-skólanum í fyrirbærafræði. Fyrirbærafræðilegar rannsóknir skoða hvaða skilning einstaklingurinn hefur á veruleika sínum og hvernig hann skynjar líf sitt. Þátttakendur voru átta karlmenn á aldrinum 35 til 50 ára sem greinst höfðu með kransæðastíflu fyrir sex til tólf mánuðum. Meðalaldur þátttakenda var 42,5 ár. Rannsakendur tóku eitt viðtal við hvern þátttakanda sem tók 30 til 60 mínútur. \nStuðst var við hálfstaðlaðan spurningarlista og voru viðtölin síðan rituð orðrétt upp. Karlmennirnir lýstu í viðtölunum hvaða áhrif sjúkdómurinn hafði á líf þeirra og líðan. Einnig hvaða aðferðir þeir notuðu til að fást við þau vandamál sem upp komu í veikindunum. \nNiðurstöður: Gögnin voru greind niður í fimm meginþemu og nokkur undirþemu og sett fram í greiningarlíkani. Meginþemun eru: Andleg líðan, líkamleg líðan, lífstílsbreytingar, að takast á við daglegt líf og upplifun af heilbrigðisþjónustu. \nNiðurstöðurnar sýndu að karlmennirnir áttu það sameiginlegt að greiningin kom þeim á óvart. Það kom fram að veikindin höfðu í fyrstu neikvæð áhrif á andlega og líkamlega líðan en þegar frá leið var það samdóma álit karlmannanna að líkamleg líðan væri betri en fyrir veikindin. Flestir breyttu lífstíl sínum til betri vegar og settu heilsu sína í forgang. Þeir sem höfðu stuðning maka tóku mun betur á lífstílsbreytingunum en þeir sem voru einstæðir gerðu litlar eða engar breytingar. Niðurstöðurnar sýndu að fræðslan komst oft á tíðum ekki til skila meðan á sjúkrahúsdvöl stóð en markviss fræðsla og eftirfylgni veita aðhald, stuðning og öryggi og spila stórt hlutverk í bataferli kransæðasjúklinga. \nÁlyktun: Rannsakendur draga þá ályktun að huga þurfi betur að andlegri líðan kransæðasjúklinga þar sem margir upplifa kvíða og hræðslu í kjölfar veikindanna. \nRannsakendur telja að þeir kransæðasjúklingar sem eiga ekki maka þurfi meiri stuðning og eftirfylgni frá fagaðilum. \nLykilhugtök: Kransæðastífla, upplifun, líðan, lífstílsbreytingar og samskipti.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,002 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,003 | 0,003 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,004 | 0,002 |
| Bibliométrie | 0,002 | 0,002 |
| Études des sciences et des technologies | 0,001 | 0,001 |
| Communication savante | 0,001 | 0,002 |
| Science ouverte | 0,002 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,002 | 0,002 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,006 | 0,006 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».