MétaCan
Menu
Back to cohort
Record W7029592692

Kransæðastífla - hvað svo? : Upplifun karlmanna af því að greinast með kransæðastíflu á besta aldri: Fyrirbærafræðileg rannsókn

2007· dissertation· is· W7029592692 on OpenAlexaboutno aff

Bibliographic record

VenueSkemman · 2007
Typedissertation
Languageis
FieldEconomics, Econometrics and Finance
TopicFinancial Markets and Investment Strategies
Canadian institutionsnot available
Fundersnot available
KeywordsContext (archaeology)PopulationTerm (time)
DOInot available

Abstract

fetched live from OpenAlex

Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun karlmanna af því að greinast með kransæðastíflu á besta aldri og hvaða áhrif það hefur á líf þeirra og líðan. Markmið rannsóknarinnar var að frásögn karlmannanna af reynslu sinni gæti gagnast þeim, fjölskyldum þeirra og öðrum sem greinast með kransæðastíflu síðar meir svo og heilbrigðisstarfsfólki. Einnig gæti rannsóknin leitt til betri skilnings heilbrigðisstarfsfólks á aðstæðum kransæðasjúklinga. Þannig er ef til vill hægt að stuðla að betri þjónustu og bættum samskiptum.
\nBakgrunnur: Kransæðasjúkdómar hafa verið ein algengasta dánarorsök Íslendinga undanfarna áratugi. Meðferð við kransæðasjúkdómum hefur þróast mikið á undanförnum árum, lífslíkur kransæðasjúklinga hafa aukist og lífsgæði þeirra batnað.
\nRannsóknarspurningin: Hver er upplifun karlmanna af því að greinast með kransæðastíflu á besta aldri.
\nRannsóknaraðferð: Rannsóknin var byggð á eigindlegri aðferð og var unnin samkvæmt Vancouver-skólanum í fyrirbærafræði. Fyrirbærafræðilegar rannsóknir skoða hvaða skilning einstaklingurinn hefur á veruleika sínum og hvernig hann skynjar líf sitt. Þátttakendur voru átta karlmenn á aldrinum 35 til 50 ára sem greinst höfðu með kransæðastíflu fyrir sex til tólf mánuðum. Meðalaldur þátttakenda var 42,5 ár. Rannsakendur tóku eitt viðtal við hvern þátttakanda sem tók 30 til 60 mínútur.
\nStuðst var við hálfstaðlaðan spurningarlista og voru viðtölin síðan rituð orðrétt upp. Karlmennirnir lýstu í viðtölunum hvaða áhrif sjúkdómurinn hafði á líf þeirra og líðan. Einnig hvaða aðferðir þeir notuðu til að fást við þau vandamál sem upp komu í veikindunum.
\nNiðurstöður: Gögnin voru greind niður í fimm meginþemu og nokkur undirþemu og sett fram í greiningarlíkani. Meginþemun eru: Andleg líðan, líkamleg líðan, lífstílsbreytingar, að takast á við daglegt líf og upplifun af heilbrigðisþjónustu. 
\nNiðurstöðurnar sýndu að karlmennirnir áttu það sameiginlegt að greiningin kom þeim á óvart. Það kom fram að veikindin höfðu í fyrstu neikvæð áhrif á andlega og líkamlega líðan en þegar frá leið var það samdóma álit karlmannanna að líkamleg líðan væri betri en fyrir veikindin. Flestir breyttu lífstíl sínum til betri vegar og settu heilsu sína í forgang. Þeir sem höfðu stuðning maka tóku mun betur á lífstílsbreytingunum en þeir sem voru einstæðir gerðu litlar eða engar breytingar. Niðurstöðurnar sýndu að fræðslan komst oft á tíðum ekki til skila meðan á sjúkrahúsdvöl stóð en markviss fræðsla og eftirfylgni veita aðhald, stuðning og öryggi og spila stórt hlutverk í bataferli kransæðasjúklinga.
\nÁlyktun: Rannsakendur draga þá ályktun að huga þurfi betur að andlegri líðan kransæðasjúklinga þar sem margir upplifa kvíða og hræðslu í kjölfar veikindanna. 
\nRannsakendur telja að þeir kransæðasjúklingar sem eiga ekki maka þurfi meiri stuðning og eftirfylgni frá fagaðilum. 
\nLykilhugtök: Kransæðastífla, upplifun, líðan, lífstílsbreytingar og samskipti.

Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.

How this classification was reachedexpand

Full frame distilled prediction

Teacher imitation

Not calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.

metaresearch head score (Codex)0.002
metaresearch head score (Gemma)0.000
Version: codex-gemma-dda1882f352aValidation status: machine_predicted_unvalidated
Candidate categoriesMeta-epidemiology (narrow), Science and technology studies, Scholarly communication, Research integrity, Insufficient payload (model declined to judge)
Consensus categoriesMeta-epidemiology (narrow), Research integrity, Insufficient payload (model declined to judge)
DomainCandidate signal: none · Consensus signal: none
Study designCandidate signal: Not applicable · Consensus signal: none
GenreCandidate signal: Empirical · Consensus signal: none
Teacher disagreement score0.761
Threshold uncertainty score1.000

Codex and Gemma teacher scores by category

CategoryCodexGemma
Metaresearch0.0020.000
Meta-epidemiology (narrow)0.0030.003
Meta-epidemiology (broad)0.0040.002
Bibliometrics0.0020.002
Science and technology studies0.0010.001
Scholarly communication0.0010.002
Open science0.0020.000
Research integrity0.0020.002
Insufficient payload (model declined to judge)0.0060.006

Machine scores (provisional)

The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.

Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.

Opus teacher head0.026
GPT teacher head0.254
Teacher spread0.228 · how far apart the two teachers sit on this one work
Validation statusscore_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from it

Classification

machine, unvalidated

Machine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.

Study designNot applicable
Domainnot available
GenreEmpirical

How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".

Quick stats

Citations0
Published2007
Admission routes1
Has abstractyes

Explore more

Same venueSkemmanSame topicFinancial Markets and Investment StrategiesFrench-language works237,207