Hvatar og hindranir á líkamsvirkni í þjónustuíbúðum aldraðra: reynsla kvenna á höfuðborgarsvæðinu
Notice bibliographique
Résumé
Bakgrunnur. Fjölmargar rannsóknir sýna að aldraðir hafa mikinn hag af því að vera líkamlega virkir sem lengst. Slíkt fyrirbyggi sjúkdóma og seinki færniskerðingu en margt bendir til þess að aldraðir hreyfi sig of lítið miðað við ráðleggingar og konur enn minna en jafnaldra karlar. Mikið hefur verið byggt af húsnæði fyrir eldri borgara á höfuðborgarsvæðinu en þó hafa engar rannsóknir verið birtar á Íslandi um áhrif búsetu í þjónustuíbúðum á líkamsvirkni íbúanna. \n \nTilgangur. Að auka þekkingu og dýpka skilning á reynslu eldri kvenna af því hvaða þættir hafa hvatt til eða hindrað líkamsvirkni þeirra eftir flutning í þjónustuíbúð. \n \nAðferð. Rannsóknin var eigindleg og byggðist á Vancouver-skólanum í fyrirbærafræði. Tekin voru 12 viðtöl við 10 konur á höfuðborgarsvæðinu sem voru á aldrinum 72-97 ára (meðalaldur 84 ár) og höfðu búið í þjónustuíbúð frá 6 mánuðum upp í 20 ár (meðaltími 5 ár). \n \nNiðurstöður. Hvatar og hindranir komu fram á líkamsvirkni kvennanna sem tengdust þremur meginþemum, efnislegu umhverfi, konunni sjálfri og félagslegu umhverfi. Hvatar tengdir efnislega umhverfinu voru upphitaðar gangstéttir, gott útivistarsvæði, nálæg verslun, kunnugleiki í hverfinu og þjálfunaraðstaða innanhúss en hindranir voru rok, hálka og brekkur. Hvatar tengdir konunni sjálfri voru fyrri lífstíll með hreyfingu, áhugahvöt, trú á eigin getu, upplifun af góðri heilsu, félagslyndi og reglubundið líf en hindranir voru lítil áhugahvöt, lítil trú á eigin getu og versnandi heilsa. Hvatar tengdir félagslega umhverfinu voru hvetjandi samband við fjölskyldu, þjálfunartilboð við hæfi, hvatning frá starfsfólki, heimasjúkraþjálfun og að upplifa hreyfimenningu. Hindranir voru letjandi samband við fjölskyldu, umönnunarbyrði og að hafa hvorki þjálfunartilboð við hæfi, hvatningu né hreyfimenningu. \n \nÁlyktanir. Í þjónustuíbúðum fyrir aldraða ætti hönnun umhverfisins að gera ráð fyrir því að hrumir, aldraðir einstaklingar komist þar um og fagaðilar þurfa að greina hvata og hindranir á líkamsvirkni. Stuðla þyrfti að myndun hreyfimenningar í þjónustuíbúðakjörnum og kynna umhverfið fyrir nýjum íbúum.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,001 | 0,001 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,001 | 0,000 |
| Bibliométrie | 0,000 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,001 | 0,000 |
| Communication savante | 0,000 | 0,000 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,002 | 0,002 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,004 | 0,004 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».