,,Það vantar meiri skilning á manni" : reynsla íslenskra mæðra sem eru þolendur kynferðislegs ofbeldis í æsku af barneignarferli og móðurhlutverki
Notice bibliographique
Résumé
Vitað er að kynferðislegt ofbeldi í æsku hefur langvarandi og víðtækar afleiðingar fyrir heilsufar kvenna, en þörf er á aukinni þekkingu og dýpri skilningi á reynslu þolenda af barneignarferli og móðurhlutverki. \nTilgangur: Að auka þekkingu og dýpka skilning á reynslu mæðra sem eru þolendur kynferðislegs ofbeldis í æsku og hvaða áhrif það getur haft á barneignarferli og móðurhlutverk. \nAðferð: Eigindleg fyrirbærafræðileg aðferð Vancouver-skólans. Tekin voru eitt til tvö djúpviðtöl við níu mæður sem allar höfðu orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi fyrir átján ára aldur, samtals 16 viðtöl, og niðurstöður þemagreindar. \nNiðurstöður: Allar mæðurnar höfðu upplifað erfiðleika og áföll í barneignarferlinu, ýmist á meðgöngu og/eða í fæðingu sem og í sængurlegu og á fyrstu mánuðum barnsins. Flestar höfðu haft mörg frávik frá eðlilegu barneignarferli. Meirihlutinn hafði fundið fyrir áhrifum ofbeldis á heilsufar sitt og þurft mikla þjónustu frá heilbrigðiskerfinu. Yfirþema niðurstaðna er: „Það vantar meiri skilning á manni“ sem lýtur að því að reynsla þátttakenda var að enn vanti skilning, bæði almennings og heilbrigðisstarfsfólks á langvarandi áhrifum kynferðisofbeldis í æsku á mæður og reynslu þeirra af barneignarferlinu og móðurhlutverki. Þrjú undirþemu voru greind: 1) „Það er alls konar að mér“ sem lýtur að líkamlegum og sálrænum áhrifum á heilsufar, almennt og á meðgöngu. 2) „Í fæðingunni er maður mest berskjaldaður“ sem lýtur að áhrifum á meðgöngu og fæðingu, á tilfinningar, reynslu af fæðingarþjónustu, sérstaklega þjónustu ljósmæðra. 3) „Þroski litaður sársauka“ sem lýtur að áhrifum á móðurhlutverkið, áskoranir, líðan og þörf fyrir stuðning og úrvinnslu. \nÁlyktun: Auka þarf þekkingu ljósmæðra, annars heilbrigðisstarfsfólks og almennings á málefninu til að dýpka skilning á því þannig að hægt sé að bæta þjónustu ljósmæðra, heilbrigðiskerfisins og reynslu mæðra af barneignarferli og móðurhlutverki. Þörf er á sérfræðiljósmóður sem væri ráðgefandi í málaflokknum. \nLykilhugtök: Kynferðislegt ofbeldi í æsku, þolandi, barneignarferli, móðurhlutverk, ljósmóðir, heilbrigði kvenna, fyrirbærafræði, viðtöl.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,002 | 0,003 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,003 | 0,002 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,002 | 0,001 |
| Communication savante | 0,001 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,003 | 0,001 |
| Intégrité de la recherche | 0,001 | 0,003 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,006 | 0,008 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».