„Maður er bara táningur 18 ára“ : upplifun ungmenna með langvinn líkamleg heilsuvandamál af flutningi frá barnaþjónustu til fullorðinsþjónustu Landspítala
Notice bibliographique
Résumé
Bakgrunnur rannsóknar: Rannsóknir sýna að mikilvægt er að standa faglega að flutningi ungmenna með langvinn heilsuvandamál frá barnaþjónustu til fullorðinsþjónustu svo að þau nýti sér heilbrigðisþjónustu sem skyldi. Ef misbrestur verður þar á getur það haft neikvæð áhrif á heilsu, lífsgæði og framtíðarhorfur þeirra. Rannsóknir sýna þó að almennt taka nútímaheilbrigðiskerfi ekki faglega á slíkum flutningi og mikil þörf er á að bæta undirbúning hans. \nTilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun ungmenna með langvinn líkamleg heilsuvandamál af flutningi frá barnaþjónustu til fullorðinsþjónustu Landspítala. Markmiðið var að dýpka skilning á væntingum ungmenna við flutninginn svo koma megi betur til móts við þarfir þeirra. \nAðferð: Notuð var fyrirbærafræðileg eigindleg rannsóknaraðferð samkvæmt greiningaraðferð Vancouver-skólans. Þátttakendur voru 11 ungmenni með langvinn líkamleg heilsuvandamál á aldrinum 20–26 ára. Tekið var eitt viðtal við hvern þátttakanda, fyrir utan að tvö viðtöl voru tekin við tvo þeirra. Þátttakendur voru valdir með tilgangsúrtaki. \nNiðurstöður: Rannsóknin sýndi að almennt var ekki staðið faglega að flutningi ungmennanna frá barnaþjónustu til fullorðinsþjónustu Landspítala og að þau upplifðu flutninginn sem einangrað fyrirbæri. Þeim fannst þau vera illa undirbúin og óviðbúin því að takast á við breytingarnar. Með aukinni sjálfsábyrgð hafa þau þó að eigin mati þroskast og aðlagast nýjum aðstæðum. Öll ungmennin komu með tillögur að því sem betur mætti fara við flutninginn og undirbúning hans. \nÁlyktun: Ef ekki er staðið vel að undirbúningi ungmenna með langvinn heilsuvandamál við flutning frá barnaþjónustu til fullorðinsþjónustu er reynsla þeirra af flutningnum erfið. Þessi rannsókn getur verið skref í átt að bættum undirbúningi. Niðurstöðurnar gefa vísbendingu um að fagfólk þurfi að endurskoða og samræma verklag sitt og að hjúkrunarfræðingar séu í lykilstöðu til að leiða fram úrbætur á þessu sviði. \nLykilorð: Ungmenni, langvinn heilsuvandamál, yfirfærsla og upplifun.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,002 | 0,002 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,002 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,001 | 0,000 |
| Communication savante | 0,001 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,001 | 0,000 |
| Intégrité de la recherche | 0,002 | 0,002 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,003 | 0,003 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».