Grjótkrabbi (Cancer irroratus) við Ísland: uppruni og lirfuþroskun með samanburði við bogkrabba (Carcinus maenas) og trjónukrabba (Hyas araneus)
Notice bibliographique
Résumé
Með auknum skipaferðum hefur flutningur sjávarlífvera á milli hafsvæða aukist mikið og \ner nú orðinn að miklu umhverfis- og efnahagslegu vandamáli á heimsvísu. Við Ísland hafa \nnokkrar nýjar tegundir sem taldar eru hafa borist hingað af mannavöldum fundist á \nsíðastliðnum áratugum. Ein þeirra er norður-ameríski grjótkrabbinn (Cancer irroratus). \nGrjótkrabbi er tiltölulega stórvaxinn tífætla (Decapoda) sem getur orðið allt að 15 cm á \nskjaldarbreidd. Tegundin fannst fyrst hér við land í Hvalfirði árið 2006, en fyrir þann tíma \nvar útbreiðsla hans aðeins þekkt við austurströnd N-Ameríku, frá Labrador til Suður- \nKarólínu. Ísland er því nyrsti þekkti fundarstaður krabbans til þessa. Talið er líklegast að \ntegundin hafi borist hingað til lands á lirfustigi í kjölfestuvatni skipa. \nRannsóknirnar hófust árið 2007 en þá voru svifsýni tekin á þremur svæðum við landið, þ.e. \ní Hvalfirði og Faxaflóa, í Álftafirði í Ísafjarðardjúpi og í Eyjafirði. Árið 2008 var sýnum \nfrá Patreksfirði og Tálknafirði bætt við. Svifsýni voru tekin mánaðarlega með Bongóháfi á \nnokkrum stöðvum á hverju svæði, frá mars til nóvember. Samhliða greiningu á \ngrjótkrabbalirfum í Hvalfirði og Faxaflóa voru bogkrabba- (Carcinus maenas) og \ntrjónukrabbalirfur (Hyas spp.) greindar til lirfustiga. Árin 2007 og 2008 voru gildruveiðar \neinnig stundaðar á fullorðnum einstaklingum, á tímabilinu frá apríl til október, í Hvalfirði, \nKollafirði, Skerjafirði og Faxaflóa. \nFullorðnir grjótkrabbar reyndust algengir í Hvalfirði. Af þeim 1059 kröbbum sem alls \nveiddust voru aðeins 148 kvendýr (14%), en tíðni kvendýra var alltaf lág í afla. Kvendýr \nmeð egg veiddust á tímabilinu frá júní til ágúst. Lirfur grjótkrabbans hafa nú fundist í \ntöluverðu magni í Hvalfirði og innanverðum Faxaflóa. Þéttleiki lirfa var lágur framan af \nsumri, náði hámarki í júlí en eftir það minnkaði hann er leið á haustið. Lirfur fundust \neinnig í svifsýnum frá Patreksfirði og því virðist krabbinn vera að breiðast út til Vestfjarða, \nþó enn sé á huldu hvort lirfum þar takist að þroskast í fullorðna einstaklinga. \nSýnum frá Íslandi og þremur stöðum í N-Ameríku (Nýfundnalandi, Halifax og New \nBrunswick) var safnað til að athuga uppruna íslenska stofnsins og til að meta hvort hann \nhafi gengið í gegnum flöskuháls í landnáminu. Niðurstöðurnar sýna að um þónokkurn \nbreytileika er að ræða í hvatbera-DNA meðal íslensku landnemanna, hann virðist þó vera \nminni (þó ómarktækt) en í N-Ameríku. Tíðni hvatberaarfgerða íslensku krabbanna er \nfrábrugðin tíðni gerða í New Brunswick en ómarktækt frábrugðin stofnunum við bæði \nHalifax og Nýfundnaland. Vísbendingar eru um að íslenski stofninn hafi gengið í gegnum \nflöskuháls en stofnarnir í N-Ameríku virðast frekar vera í jafnvægi, eða gengið í gegnum \nflöskuháls fyrir þónokkru síðan. Hár breytileiki og vaxtarhraði íslenska stofnsins gefa til \nkynna að hann sé lífvænlegur og geti þrifist vel við Ísland.
Récupéré en direct depuis OpenAlex et désinversé. Les résumés ne sont pas conservés dans cette base de données : les index inversés représentent 8,6 Go des 9,3 Go de texte de la base, et le serveur dispose de 13 Go libres.
Comment cette classification a été obtenuedéplier
Prédiction distillée sur la base complète
Imitation des enseignantsNi prévalence calibrée, ni vérité terrain. Validation humaine à venir. Apprise à partir de 10 348 étiquettes directes de Codex et de 10 348 étiquettes directes de Gemma. Le mode candidate est l'union des têtes enseignantes seuillées; le consensus est leur intersection. Ces sorties portent le statut machine_predicted_unvalidated et ne sont ni des étiquettes humaines ni des étiquettes directes de modèles de pointe.
Scores Codex et Gemma par catégorie
| Catégorie | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Métarecherche | 0,001 | 0,000 |
| Méta-épidémiologie (sens strict) | 0,002 | 0,002 |
| Méta-épidémiologie (sens large) | 0,002 | 0,001 |
| Bibliométrie | 0,001 | 0,001 |
| Études des sciences et des technologies | 0,002 | 0,002 |
| Communication savante | 0,000 | 0,001 |
| Science ouverte | 0,003 | 0,001 |
| Intégrité de la recherche | 0,005 | 0,005 |
| Charge utile insuffisante (le modèle a refusé de juger) | 0,068 | 0,015 |
Scores machine (provisoires)
Les deux têtes enseignantes du modèle étudiant, lues sur ce travail. Un score ordonne la base pour la relecture; il n'affirme jamais une catégorie, et le statut de validation accompagne chaque rangée tel quel.
Scores de référence d'un modèle non mature (critères de maturité non atteints, 7 itérations). Un score ordonne; il n'affirme jamais une catégorie.
score_only:v0-immature-baseline · tel quel depuis la passe de notation : score_only signifie que le nombre peut ordonner les travaux, et qu'aucune étiquette de catégorie n'en découleClassification
machine, non validéePrédiction automatique; les deux têtes enseignantes s’accordent sur ce qui est montré ici.
Le détail, modèle par modèle et score par score, se trouve en fin de page sous « Comment cette classification a été obtenue ».