„Annað afall ofan a hitt“ : reynsla kærenda nauðgana af rettarvorslukerfinu a Norðurlandi þar sem malið var fellt niður
Bibliographic record
Abstract
Bakgrunnur rannsóknar: Kynferðislegt ofbeldi er brot á mannréttindum og alvarlegt lýðheilsuvandamál. Víða um heim er slíkt ofbeldi sá glæpur sem sjaldnast er tilkynntur til lögreglu. Fyrri rannsóknir sýna að helstu ástæður þess að kæra ekki kynferðisbrot er lítil trú á réttarvörslukerfinu og til að vernda sig frá frekari vanlíðan og streitu. \nTilgangur rannsóknarinnar var að auka þekkingu og dýpka skilning á reynslu kærenda nauðgana af réttarvörslukerfinu á Norðurlandi þar sem málið var fellt niður. \nRannsóknaraðferðin var Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði. Þátttakendur voru átta konur sem höfðu kært nauðgun til lögreglu á Norðurlandi og málið fellt niður af ákæruvaldi. Konunum var ýmist greint frá niðurfellingu málsins með bréfi eða í viðtali á lögreglustöð. Tekin voru tvö viðtöl við hvern þátttakanda, samtals 16 viðtöl. \nNiðurstöðum var skipt í fjögur meginþemu eftir stigum kæruferlisins eins og þátttakendur upplifðu þau: 1) „Ætlaði aldrei að kæra“ 2) „Þessi óvissa, að vita aldrei neitt“ 3) „Þegar málið var fellt niður“ 4) „Sat eftir í sárum“. Meginniðurstaða rannsóknarinnar er að þátttakendur upplifðu það sem annað áfall ofan á hitt að leita til réttarvörslukerfisins í kjölfar nauðgunar. Niðurfelling málsins var öllum konunum áfall, óháð því hvernig þeim var tilkynnt um hana. Þær konur sem fengu viðtalið voru þó sáttari með það hvernig þeim var tjáð um niðurfellinguna. Konurnar voru allar ósáttar með málsmeðferðina en þegar öllu var á botninn hvolft sáu þær samt sem áður ekki eftir því að hafa kært brotið. \nÁlyktun: Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þörfum þolenda nauðgana sé ekki nægilega vel mætt í réttarvörslukerfinu hér á landi. Byggja þarf upp réttarvörslukerfi sem getur átt hlut í bataferli þolenda í stað þess að vinna gegn bata þeirra. Með slíku kerfi má leiða líkum að því að tilkynningum kynferðisbrota fjölgi, sem er skref í áttina að upprætingu þess útbreidda vanda sem kynferðislegt ofbeldi er. \nLykilorð: Kynferðislegt ofbeldi, nauðgun, sálrænt áfall, réttarvörslukerfi, fyrirbærafræði.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.002 | 0.000 |
| Research integrity | 0.003 | 0.003 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.023 | 0.027 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".