Réttindi flugfarþega með áherslu á reglugerð nr. 261/2004/EB
Bibliographic record
Abstract
Með þessari ritgerð er ætlunin að setja fram heildstæða umfjöllun um réttindi flugfarþega þegar flugrekandi af einhverjum ástæðum stendur ekki við gerðan samning. Segja má því að efnistök ritgerðarinnar miðist því við vanenfndir flugrekanda á samningi aðila og vanefndaúrræði farþega, sem settar hafa verið sérstakar reglur um. Þannig tekur efni ritgerðarinnar nánast að öllu leyti mið af efni reglugerðar nr. 261/2004/EB um sameiginlegar reglur um skaðabætur og aðstoð til handa farþegum sem neitað er um far og þegar flugi er aflýst eða mikil seinkun verður, sem innleidd var í íslenskan rétt með reglugerð nr. 574/2005. Reglugerðin tekur til þriggja nánar tilgreindra tilvika, þ.e. þegar farþega er neitað um far, þegar flugi er aflýst og þegar mikil seinkun verður. Fjallað verður um hvert tilvik fyrir sig í köflum 4, 5 og 6 og þau réttindi sem farþegum eru veitt með reglugerðinni. Dómaframkvæmd Evrópudómstólsins frá gildistöku reglugerðarinnar er nokkur og hefur hún haft grundvallaráhrif á túlkun hennar og verður framkvæmdinni gerð ítarleg skil þegar við á. \nUm farþegaflug gildir þó ekki aðeins reglugerðin heldur einnig alþjóðasamningar, annars vegar Varsjársamningurinn og hins vegar Montreal-samningurinn. Í samningunum er m.a. fjallað um skaðabótarétt farþega þegar flugi er seinkað og þegar tafir eða tjón verða á farangri. Í ljósi þess að samningarnir skarast við reglugerðina hvað varðar seinkun, og að aðeins er fjallað um farangur í samningunum en ekki í reglugerðinni, verður að telja nauðsynlegt að fjalla einnig um samningana að því marki sem það rúmast innan efnistaka ritgerðarinnar. Því verður fjallað sérstaklega um skaðabótarétt farþega vegna seinkunar og reglur er varða farangur. Um skaðabótarétt farþega á grundvelli annarra reglna samninganna, t.d. vegna líkamstjóns, verður ekki fjallað um né um skaðabótarétt farþega á öðrum grundvelli en þessara þriggja áðurnefndra réttarheimilda.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.001 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.009 | 0.011 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".