Fjölskylduhjúkrun á Barnaspítala Hringsins: Upplifaður stuðningur mæðra og ánægja með heilbrigðisþjónustuna
Bibliographic record
Abstract
Þegar fjölskylduhjúkrun var innleidd á LSH var það gert í anda stefnu spítalans að hafa sjúklinginn í fyrirrúmi og svo í samræmi við sýn og stefnu hjúkrunar um að efla samstarf við sjúklinga og fjölskyldur þeirra í meðferð og ákvarðanatöku. Markmiðið með þessari innleiðingu var að bæta gæði hjúkrunar og efla samstarf við sjúklinginn og fjölskyldu hans. \nSjúkrahúsinnlagnir barna, hvort sem þær eru skipulagðar eða óvæntar, valda álagi í fjölskyldum og þá sérstaklega á foreldrana. Með innleiðingu fjölskylduhjúkrunar á Barnaspítala Hringsins (BH) sem fellst í stuttum meðferðarsamræðum og byggir á hugmyndafræði Calgary-fjölskylduhjúkrunar, var markmiðið að auka gæði hjúkrunar við börn og fjölskyldur þeirra. \nTilgangur þessarar rannsóknar var að kanna upplifun mæðra á BH af stuðningi og fræðslu frá hjúkrunarfræðingum auk þess að kanna upplifun þeirra af fjölskylduvirkni og ánægju þeirra með heilbrigðisþjónustuna á BH. \nRannsóknarsniðið er lýsandi þverskurðarsnið. Þátttakendur voru hentugleikaúrtak foreldra 123 barna sem fengu heilbrigðisþjónustu á BH. Svörun var 49% (N=60). Í þessari rannsókn verða aðeins skoðuð svör frá mæðrum 46% (n=56). Við gagnaúrvinnslu var notuð lýsandi tölfræði og t-próf. \nForeldrarnir svöruðu þremur spurningalistum um: stuðning og fræðslu hjúkrunarfræðinga við fjölskyldur, fjölskylduvirkni og ánægju með heilbrigðisþjónustuna. \nHelstu niðurstöður voru þær að mæður sem áttu barn með langvinna sjúkdóma upplifðu marktækt meiri hugrænan og heildar stuðning. Þær mæður sem áttu sjálfar við alvarleg veikindi að stríða eða einhver annar í fjölskyldunni, upplifðu marktækt minni tilfinningalegan stuðning og heildarstuðning. Þær mæður sem töldu sig hafa fengið fræðslu um sjúkdóm barnsins upplifðu marktækt meiri hugrænan stuðning, tilfinningalegan stuðning og heildarstuðning en þær mæður sem ekki töldu sig hafa fengið fræðslu. Mæður barna sem hvorki taka lyf reglulega né hafa þau legið á spítala áður upplifðu marktækt meiri ánægju með þær upplýsingar sem þær fengu varðandi sjúkdóm barnsins og meðferðina við honum en mæður barna sem taka inn lyf reglulega og hafa legið á spítala áður. \nÞessar rannsóknarniðurstöður gefa hjúkrunarfræðingum á barnasviði tilefni til að álykta að fræðsla til mæðra/foreldra barna á spítalanum hafi áhrif á og bæti upplifun þeirra af stuðningi og hafi einnig áhrif á mat þeirra á ánægju með heilbrigðisþjónsutu. \n \nLykilorð: Foreldrar, börn, sjúkrahúsinnlögn, barnahjúkrun, fjölskylduhjúkrun, fjölskyldustuðningur, fjölskylduvirkni og ánægja með heilbrigðisþjónustuna.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.004 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.003 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.005 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.002 | 0.001 |
| Research integrity | 0.004 | 0.006 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.010 | 0.027 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".