Lærdómssamfélag í leikskólanum er bara svona vítt og breitt : um reynslu leikskólastjóra af faglegu lærdómssamfélagi í leikskólum og hvernig þeir líta á hvað lærdómssamfélag er
Bibliographic record
Abstract
Tilgangur rannsóknarinnar var að skoða faglegt lærdómssamfélag í leikskóla. Rannsaka á hvaða reynslu leikskólastjórar hafa af faglegu lærdómssamfélagi og hvaða skilning þeir leggja í hugtakið. \nÞetta var eigindleg rannsókn í fyrirbærafræði sem byggðist á Vancouver–skólanum. Þátttakendur eru níu leikskólastjórar af landsbyggðinni allt konur með mislanga reynslu af því að vera skólastjórar en allar með mjög langa reynslu af leikskólastarfi. Með viðtölunum var leitast við að fá vitneskju um þá reynslu sem leikskólastjórarnir hafa um faglegt lærdómssamfélag. Hvernig þeir upplifa faglegt lærdómssamfélag í skólanum sínum, ásamt því að fá innsýn inn í hvaða skilning þeir leggja í hugtakið faglegt lærdómssamfélag. \nMegin niðurstöður rannsóknarinnar gáfu til kynna að skólastjórarnir nálguðust viðfangsefnið frá mismunandi hliðum og leggja mismunandi skilning í hugtakið lærdómssamfélag. Skólastjórarnir horfðu til þess að lærdómssamfélag væri innan skólans en einnig að það nái út fyrir skólann og væri allt um kring. Þegar skoðað er hvaða þættir koma fram hjá þeim, eru það sameiginleg sýn og markmið, dreifð forysta, samstarf og samvinna með áherslu á teymis– og nefndarvinnu, þar sem starfsmenn geta ígrundað starfið. Aðrir þættir sem koma fram eru að traust og virðing væri á meðal starfsmanna, sem einkennist af jákvæðum og opnum samskiptum, ásamt starfsþróun og starfseflingar með stuðningi stjórnenda og annarra starfsmanna. \nHelstu hindranir sem skólastjórarnir sáu í vegferð sinni að því að gera leikskólana að faglegu lærdómssamfélagi voru, of lítill tími til funda, of fáir starfs– og námskeiðsdagar. Lítill tími til að ígrunda og koma verkefnum áfram, of fáir fagmenntaðir starfsmenn og mikil fjarvera starfsmanna vegna veikinda. Þegar kom að hindrunum þá er hægt að skipta skólunum í tvær fylkingar annars vega leikskólar sem eru komnir vel á veg með faglegt lærdómssamfélag og síðan þeir sem eru rétt að fóta sig í þeirri vegferð að gera leikskólana að faglegu lærdómssamfélag.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.004 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.005 | 0.005 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.005 | 0.003 |
| Bibliometrics | 0.002 | 0.006 |
| Science and technology studies | 0.005 | 0.002 |
| Scholarly communication | 0.003 | 0.003 |
| Open science | 0.006 | 0.001 |
| Research integrity | 0.005 | 0.006 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.016 | 0.019 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".