Þjónustugæði og ímynd Nova
Bibliographic record
Abstract
Samkeppni og verðstríð á íslenska fjarskiptamarkaðinum eru að blómstra. Umtalsverðar breytingar hafa orðið á fjarskiptamarkaðinum innbyrgðis. Markaðshlutdeild Nova hefur vaxið hægt og þétt á kostnað annarra fjarskiptafyrirtækja og er Nova orðið stærsta fjarskiptafyrirtæki Íslands. Í desember 2007 var formleg opnun Nova og lagði fyrirtækið áherslu á 3G+ og 4G farsíma- og netkerfi auk LTE þjónustu. Nova heldur því fram að með tilkomu sinni hafi þeir opnað dyr að stærsta skemmtistað í heimi, internetinu. \nÍ þessari ritgerð er fjallað um þjónustugæði og ímynd Nova. Ritgerðinni er hægt að skipta upp í þrjá hluta. Í fyrsta hluta ritgerðarinnar er fræðileg umfjöllun um markaðsfræði, þjónustu og ímynd fyrirtækja. Í öðrum hlutanum er fjallað um samkeppnisaðila, markaðsfræði, þjónustu og ímynd Nova. Íslenska ánægjuvogin gerir mælingar á ánægju viðskiptavina en auk þess kannar hún meðal annars ímynd fyrirtækja og mat viðskiptavina á þjónustugæðum svo eitthvað sé nefnt. Samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni eru viðskiptavinir Nova þeir ánægðustu í farsímaþjónustu. Í seinasta hluta ritgerðarinnar var leitast við að svara rannsóknarspurningu verkefnisins með megindlegri rannsóknaraðferð. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er: „Hver eru viðhorf og skoðanir viðskiptavina Nova á þjónustugæðum og ímynd fyrirtækisins?” \nHelstu niðurstöður megindlegu rannsóknarinnar voru þær að viðskiptavinum Nova fannst fyrirtækið bjóða upp á gæðaþjónustu og hafa jákvæða ímynd. Alls 77% viðskiptavina Nova töldu fyrirtækið vera virkt á samfélagsmiðlum/netinu en einungis 46% viðskiptavina þekktu slagorð fyrirtækisins. Nova þekkir þarfir og væntingar viðskiptavina sinna, tekur skilvirkar markaðsákvarðanir og stendur sig vel í að skila virði til viðskiptavina sinna.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.000 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.000 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.011 | 0.003 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".