Breytingar þurfa að vera samvinnuverkefni : reynsla millistjórnenda á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni af því að leiða breytingar
Bibliographic record
Abstract
Tilgangur rannsóknarinnar var að auka þekkingu og dýpka skilning á reynslu millistjórnenda á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni af því að leiða breytingar og af stuðningi og stuðningsleysi í því samhengi. \n \nAðferð. Notuð var fyrirbærafræðileg rannsóknaraðferð, Vancouver-skólinn í fyrirbærafræði. Gögnum var safnað með viðtölum við 12 millistjórnendur á íslenskum heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni sem leitt höfðu breytingar. Margar ástæður voru fyrir breytingunum, svo sem fyrirmæli frá yfirmönnum, verklagsbreytingar, sameiningar stofnana og flutningur á starfsemi starfsstöðva þeirra. \n \nNiðurstöður. Yfirþema rannsóknarinnar og megin niðurstaða er: Breytingar þurfa að vera samvinnuverkefni. Þátttakendum bar saman um að til að leiða breytingar þurfi millistjórnandinn að hafa fólk með sér, hvort sem það eru yfirmenn, undirmenn eða samfélagið. Til að ná þessari samvinnu og fá fólk með sér, skipti stjórnandinn sjálfur miklu máli, menntun hans, þekking, reynsla, kjarkur og áræðni, en einnig sú streita og það álag sem þegar var á stjórnandanum. Eflandi áhrifaþættir í breytingaferlinu voru stuðningur yfirmanna, undirmanna og samfélagsins, ásamt sigrum í breytingaferlinu. Algengasta form stuðnings yfirmanna var virk hlustun og hvatning. Þátttakendur rannsóknarinnar virtust hafa talsvert sjálfstæði í vinnu sinni og voru þakklátir fyrir það. Helstu hindranir í breytingaferlinu voru í tengslum við hraða breytinga, ónógt fjármagn og ósátta undirmenn, sem veittu breytingunum mótspyrnu. Breytingaferlið sjálft markaði reynslu millistjórnendanna og þá helst tilurð breytinganna, undirbúningur stjórnandans og framkvæmd breytingaferlisins, en þátttakendur rannsóknarinnar upplifðu talsverða streitu við að leiða breytingarnar. Að lokum komu fram þættir um það sem betur hefði mátt fara í innleiðingu breytinganna, svo sem skýrari framtíðarsýn fyrir heilbrigðisstofnanir á landsbyggðinni og markviss handleiðsla fyrir millistjórnendur. \n \nÁlyktanir. Rannsóknin veitir fáséða innsýn í reynslu millistjórnenda á heilbrigðisstofnunum á landsbyggðinni. Þróa þyrfti skýrari framtíðarsýn fyrir slíkar stofnanir og fá millistjórnendur með í þá vinnu. Þá er ljóst að millistjórnendur þurfa handleiðslu og stuðning, einkum ef þeir eiga að leiða breytingar. \n \nLykilhugtök: Millistjórnendur, breytingaferli, leiðtogahæfni, fyrirbærafræði, viðtöl. \n
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.000 |
| Science and technology studies | 0.003 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.002 | 0.001 |
| Open science | 0.003 | 0.000 |
| Research integrity | 0.002 | 0.002 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.004 | 0.003 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".