Iktsýki, streita og tileinkun bjargráða eftir áföll : fyrirbærafræðileg rannsókn frá sjónarhóli iktsjúkra
Bibliographic record
Abstract
Á Íslandi eru um 2100 konur og 900 karlar greind með sjálfsónæmissjúkdóminn \niktsýki og veldur hann mörgum þeirra ómældri þjáningu. Rannsóknir á orsökum \niktsýkinnar benda til þess að tilhneigingin til að fá sjúkdóminn erfist og með tilkomu \nóþekktra umhverfisþátta leysist gigtin úr læðingi. Minna hefur verið rannsakað hvaða \nþættir hafa áhrif á líðan iktsjúkra eða hvaða bjargráð þeir tileinka sér eftir alvarleg \nsálræn áföll. Rannsakandi ákvað í ljósi þessa að auðga þekkinguna sem fyrir er með \nþví að gaumgæfa upplifun iktsjúkra sjálfra af: a) hvað leysti sjúkdóminn úr læðingi, b) \náhrifum langvarandi streitu á sjúkdómseinkenni og c) hvaða bjargráð þeir tileinkuðu \nsér eftir alvarleg áföll. \nRannsóknin er fyrirbærafræðileg og fylgt var aðferð Vancouver-skólans sem einkum \nbyggir á fyrirbærafræði og túlkunarfræði. Gagna var aflað með átján samræðum við \nátta manns með iktsýki sem einnig höfðu reynslu af áföllum, s.k. tilgangsúrtak. Það \neykur trúverðugleika rannsóknarinnar að túlkun orðræðu og niðurstöður voru bornar \nundir meðrannsakendur til að fá staðfestingu á að skilningur og túlkun rannsakanda \nværi rétt. \nMeginþemu sem komu í ljós: \n1) Flestir lýstu því að meiriháttar streita af líkamlegum eða sálrænum toga hefði leyst \nsjúkdóminn úr læðingi. \n2) Sjúkdómurinn „blossaði upp“ við langvarandi streitu. Samskipti m.a. við \nheilbrigðisstarfsmenn var einn þeirra þátta sem olli langvarandi streitu. \n3) Meginbjargráðið var „að ekki gefast upp“, rannsakandi túlkar það sem þolgæði og \nákveðnir þættir ýmist styrktu eða veiktu þolgæðið. \nNiðurstöður undirstrika mikilvægi þess að greina iktsýki fljótt og bregðast markvisst \nvið áhrifaþáttum á sjúkdómsþróun. Brýnt er að heilbrigðisstarfsmenn líti í eigin barm \nv \nIktsýki, streita og tileinkun bjargráða eftir áföll \nog hugi að sjálfsvitund og samskiptahætti sínum. Uppeldislegur þáttur: „þú átt að \nstanda þig“ gerði að verkum að samræðufélagar veigruðu sér við að leita eftir hjálp, \njafnvel til nákominna við alvarleg sálræn áföll. \nÞað er tímabært að efla grunnstoðir samfélagsþjónustunnar gagnvart iktsjúkum og \nþolendum alvarlegra sálrænna áfalla. Bjóða þarf upp á heilsugæsluþjónustu, í \nsamstarfi við gigtarsérfræðinga og Gigtarfélag Íslands, sem byggist á teymisvinnu og \nsjálfshjálparhópum. \nÞað er tilvinnandi að fyrirbyggja óþarfa líkamlega og andlega þjáningu með fræðslu \num eðli og úrvinnslu alvarlegra sálrænna áfalla. Aukið heilsulæsi myndi gera fólk \ndómbært á úrræði og hvenær þörf sé fyrir sérfræðihjálp. Fyrir þolendur alvarlegra \nsálrænna áfalla er álitlegur kostur að huga að auknu samstarfi heilsugæslu við presta \nog djákna landsins. \nÞessi úrræði gætu bætt lífsgæði fólks, stuðlað að aukinni samfellu í þjónustu, dregið úr \nlyfjakostnaði ásamt því að gera heimsóknir til gigtarsérfræðinga og geðlækna \nmarkvissari. \nMeginhugtök: Iktsýki, alvarlegt sálrænt áfall, langvarandi streita, tileinkun bjargráða.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.002 |
| Science and technology studies | 0.002 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.001 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.002 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.009 | 0.005 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".