"Þú verður bara að bjarga þér sjálfur" : lýsing reyndra hjúkrunarfræðinga á landsbyggðarhjúkrun
Bibliographic record
Abstract
Víða erlendis er litið á landsbyggðarhjúkrun sem sérsvið innan hjúkrunar og rannsóknir tengdar sviðinu hafa notið aukinnar athygli síðustu ár. Lítið hefur borið á fræðilegum skrifum um landsbyggðarhjúkrun á Íslandi. Í kjölfar hækkandi lífaldurs koma fleiri til með að þurfa umönnun og meðferð, bæði í þéttbýli og dreifbýli. Erlendar rannsóknir sýna að hjúkrunarfræðingar gegna lykilhlutverki í þjónustu á landsbyggðinni. það er því mikilvægt er að byggja upp þekkingu á landsbyggðarhjúkrun á Íslandi, skapa tækifæri til framhaldsmenntunar landsbyggðarhjúkrunarfræðinga og greina þörf fyrir heilbrigðisþjónustu, til að mæta framtíðar áskorunum. \nTilgangur rannsóknarinnar var að öðlast innsýn í störf og hlutverk hjúkrunarfræðinga á meðalstóru landsbyggðarsjúkrahúsi á Íslandi og taka með því fyrsta skef í átt að frekari rannsóknum. Rannsóknarspurningin var: Hver eru meginatriði í lýsingu reyndra hjúkrunarfræðinga á störfum sínum og hlutverki á landsbyggðarsjúkrahúsi? Notuð var fyrirbærafræðileg eigindleg rannsóknaraðferð samkvæmt Vancouver-skólanum í fyrirbærafræði. Gögnum var safnað með samtölum við níu reynda hjúkrunarfræðinga. Niðurstöður rannsóknar og túlkun rannsakanda á rannsóknargögnum var borin undir viðmælendur til að efla trúverðugleika. \nNiðurstöður benda til að landsbyggðarhjúkrunarfræðingar þurfi að hafa víðtæka þekkingu og hæfileika til að starfa sjálfstætt við aðstæður þar sem sjúklingahópurinn er fjölbreyttur og skortur er á úrræðum og faglegum stuðningi. Vísbendingar eru um að nánd sem skapast á milli hjúkrunarfræðinga og samfélagsins sem þeir þjóna, hafi fjölþætt áhrif á störf þeirra. Viðmælendur lýsa því að hlutverk þeirra sé breiðara en ætla mætti, þegar kemur að því að mæta þjónustuþörf íbúa og vegna þeirrar skörunar sem myndast á milli ólíkra fagstétta. Viðmælendur lýstu því jafnframt að starfið væri tilfinningalega krefjandi, ekki sýst sökum nándar. Rannsóknin gefur vísbendingar um hversu flóknu hlutverki landsbyggðarhjúkrunarfræðingar gegna og undirstrikar þörf á frekari rannsóknum.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.000 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.001 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.010 | 0.011 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".