,,Það hjálpaði mér alveg svakalega að fá að prófa". Tækniskólaval fyrir grunnskólanemendur
Bibliographic record
Abstract
Meginmarkmið þeirrar rannsóknar sem hér er fjallað um er að fá innsýn í reynslu og upplifun nemenda sem fóru í Tækniskólaval sem valgrein þegar þeir voru í 10. bekk. Nemendur völdu þrjár iðn- eða starfsnámsgreinar og stunduðu lotuskipt nám í þeim yfir skólaárið og fengu að kynnast eðli þeirra, inntaki og tækjabúnaði. Rannsókninni er einnig ætlað að skoða upplifun nemenda af náms- og starfsfræðslu í grunnskólanum um iðn- og starfsnám. Þá var líka skoðuð reynsla þeirra af því að hefja nám í Tækniskólanum í framhaldinu. Rannsóknin er eigindleg og voru tekin viðtöl við þrjá einstaklinga sem hafa staðið að skipulagningu og framkvæmd Tækniskólavalsins og átta nemendur úr Tækniskólanum á aldrinum 16 til 19 ára. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar eru þær að flestir viðmælendur, bæði nemendur og starfsmenn í Tækniskólavali, telja vera stýrandi áherslu á bóknám í grunnskólanum. Niðurstöður benda til þess að fræðsla um iðn- og starfsnám í grunnskólanum sé lítil, yfirborðskennd og ómarkviss. Þá gefa niðurstöður einnig til kynna að nemendur þekki lítið til eðlis og inntaks iðn- og starfsnáms að grunnskólanámi loknu. Niðurstöður benda einnig til þess að viðhorf unglinga til iðn- og starfsnáms sé almennt neikvætt. Nemendur sem rætt var við fengu jákvæð viðbrögð um nám sitt frá fullorðnum eftir að þeir hófu nám í Tækniskólanum. Upplifun þeirra af Tækniskólavalinu var jákvæð, meðal annars sem náms- og starfsfræðslu. Nemendurnir leggja mikla áherslu á að fá að prófa hlutina sjálfir og kynnast þeim af eigin raun til að geta valið sér framhaldnám á upplýstan hátt. Þeir komu flestir úr fjölskyldum þar sem hefð er fyrir námi og störfum á sviði iðn- og starfsnáms. Margir þeirra leggja áherslu á að þeir þurfi að þekkja nám og störf á sviði iðn- og starfnáms úr sínu nánasta umhverfi til að kunna að meta þau að verðleikum. \nVonir standa til að niðurstöðurnar varpi ljósi á hvernig skipulag náms- og starfsfræðslu á sviði iðn- og starfsnáms gæti hentað grunnskólanemendum best. Þar sem niðurstöður benda til þess að nemendur í grunnskóla hafi neikvætt viðhorf til iðn- og starfsnáms er mikilvægt fyrir alla sem vinna með börnum og unglingum að gera sér grein fyrir því. Náms- og starfsráðgjafar geta verið í lykilhlutverki í að fræða nemendur og vinna að jákvæðara viðhorfi til iðn- og starfsnáms.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.000 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.002 |
| Open science | 0.002 | 0.000 |
| Research integrity | 0.002 | 0.003 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.004 | 0.013 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".