"Svo reynir maður alltaf að semja við almættið" : upplifun aðstandenda af þjónustu við notendur innan sérhæfðrar deildar á geðsviði Landspítala
Bibliographic record
Abstract
Mikil breyting verður hjá fjölskyldum þegar einstaklingur innan hennar veikist af geðsjúkdómi. Fjölskylduaðstæður mótast af veikindunum og allir meðlimir hennar ganga í gegnum sorgarferli. Þegar um tvíþáttagreiningu er að ræða, sem er bæði geðsjúkdómur og fíknisjúkdómur, eykst álagið enn frekar. Það er mikilvægt fyrir fjölskyldur í þessum aðstæðum að fá stuðning og fræðslu innan heilbrigðiskerfisins. \nTilgangur rannsóknarinnar var að kanna upplifun aðstandenda af þjónustu á sérhæfðri deild innan geðsviðs Landspítala. Það sem rannsakendur voru að leita eftir var að vita hverjar væntingar aðstandenda voru til deildarinnar og hvort þær væntingar hafi staðist. Notast var við eigindlega aðferðafræði við rannsóknina og var stuðst við 12 þrepa rannsóknarferli Vancouver-skólans. Tekin voru viðtöl við níu aðstandendur einstaklinga sem eru innritaðir á sérhæfða deild innan geðsviðs Landspítala og var úrtakið þægindaúrtak. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að þátttakendur voru á heildina litið ánægðir með starfsmenn og starfsemi deildarinnar. Þeir höfðu sterka von fyrir hönd aðstandanda síns og voru bjartsýnir á framtíðina. Þátttakendur vilja halda tengslum við aðstandendur, byggja upp og styrkja fjölskyldutengslin. Það var álit þátttakenda að aðstandendur þeirra þyrftu öryggi, stuðning og húsaskjól. \nMargt var vel gert á deildinni og voru þátttakendur meðal annars ánægðir með þau framtíðarúrræði sem deildin hafði upp á að bjóða. Rannsóknin bendir þó til þess að tækifæri séu til úrbóta á ýmsum sviðum. Meðal annars má auka markvissa og reglulega fræðslu til þátttakenda, ásamt því að deildin mætti sýna meira frumkvæði að skilgreindum stuðningi og þjónustu við þátttakendur. Einnig fannst þátttakendum miður að fá ekki formlega kynningu á deildinni fyrir innlögn. Rannsakendur lögðu fram tillögu að kynningarbæklingi fyrir deildina. \n \nLykilhugtök: Fjölskylduhjúkrun, tvíþáttagreining, framhaldsúrræði, fræðsla, geðsjúkdómar.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.003 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.003 | 0.003 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.003 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.002 | 0.002 |
| Science and technology studies | 0.005 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.001 |
| Open science | 0.002 | 0.000 |
| Research integrity | 0.005 | 0.006 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.004 | 0.006 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".