Ég vonaði bara alltaf það besta : upplifun mæðra í tengslum við auka ómskoðun vegna gruns um vaxtarskerðingu hjá fóstri á meðgöngu
Bibliographic record
Abstract
Hérlendis er öllum barnshafandi konum boðið upp á meðgönguvernd. Markmið hennar er að stuðla að líkamlegu- og andlegu heilbrigði móður og barns. Mikilvægt er að greina áhættuþætti eins og vaxtarskerðingu fósturs sem fyrst á meðgöngu. Vaxtarskerðing getur bent til þroskafrávika hjá fóstri og/eða orsakað víðtæk vandamál. \nRannsóknin miðaði að því að skoða reynslu og upplifun mæðra sem hafa farið í ómskoðun vegna gruns um vaxtarskerðingu hjá fóstri. Markmið rannsóknarinnar var að öðlast sýn í reynsluheim mæðranna, kanna þá upplýsingagjöf sem þær fengu og upplifun þeirra á meðgönguvernd. Rannsóknarspurningin var: Hver er upplifun mæðra í tengslum við ómskoðun vegna gruns um vaxtarskerðingu hjá fóstri á meðgöngu? \nUnnið var út frá þeirri tilgátu að almennt séu mæður í raun ekki viðbúnar því að að mæta til frekari skoðana vegna gruns um frávik fósturs. \nÞátttakendur voru átta mæður sem fengnar voru til að taka þátt í rannsókninni fyrir milligöngu yfirljósmóður og yfirlæknis á kvennadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Um var að ræða tilgangsúrtak. Sú rannsóknaraðferð sem valin var fyrir rannsóknina er eigindleg, fyrirbærafræðilegri nálgun. Gögnum var safnað með hálfstöðluðum viðtölum við átta konur og síðan greind með Vancouver skóla aðferðinni. \nNiðurstöður rannsókninnar sýna að allar konurnar upplifðu vanlíðan í tengslum við fregnirnar af vaxtarskerðingunni og sumar sjálfsásökun. Aukin bið eftir tíma í ómskoðun orsakaði frekari vanlíðan. Flestum leið illa í skoðuninni sjálfri, voru áhyggjufullar með öndina í hálsinum en öllum var létt að henni lokinni. Upplifun kvennanna af meðgönguvernd var yfirleitt góð og voru þær ánæðgar með almenna upplýsingagjöf og viðmót þar. Fæstar voru ánægðar með upplýsingagjöf varðandi vaxtarskerðingu. \nNiðurstöðurnar sýna fram á mikilvægi trausts og upplýsingagjafar í meðgönguvernd. Fagfólk í meðgönguvernd gegnir stóru hlutverki varðandi vellíðan barnshafandi kvenna gagnvart meðgöngunni og ófædda barninu. Hægt er að nýta rannsóknarniðurstöðurnar til að koma sem best til móts við þarfir verðandi mæðra sem boðið er að fara í auka ómskoðun vegna gruns um vaxtarskerðingu fósturs.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.000 |
| Open science | 0.003 | 0.001 |
| Research integrity | 0.001 | 0.004 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.221 | 0.005 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".