Grófhreyfiþroski örbura og fyrirbura með ákaflega lága fæðingarþyngd á Íslandi. Börn fædd fyrir 28. meðgönguviku og/eða vógu undir 1000 grömm við fæðingu
Bibliographic record
Abstract
Inngangur: Fyrirburar sýna gjarnan seinkaðan hreyfiþroska vegna óþroskaðs miðtaugakerfis. Þeir eru einnig í aukinni áhættu á að fá ýmsa fylgikvilla sem geta valdið heilaskaða og þar með haft neikvæð áhrif á hreyfiþroska. \nMarkmið: Að kanna hvort örburar og fyrirburar með ákaflega lága fæðingarþyngd sýni seinkun í grófhreyfiþroska fyrstu ævimánuði þeirra. Einnig að skoða hvort tengsl á milli ýmissa heilsufarsþátta og hreyfiþroska barnanna séu til staðar við 12 mánaða leiðréttan aldur. \nAðferðafræði: Rannsóknarsniðið er langsniðs afturskyggn ferilrannsókn. Gögn úr gagnasafni Barnaspítala Hringsins og sögukerfi Landspítalans um örbura (fædd <28. meðgönguviku) og fyrirbura með ákaflega lága fæðingarþyngd (fæðingarþyngd <1000 grömm) fæddir á tímabilinu 2011-2020 voru notuð. Hreyfiþroski barnanna var metinn fyrstu ævimánuðina með Alberta Infant Motor Scale (AIMS) grófhreyfiþroskaprófi og með grófhreyfiþroskahluta Bayley III þroskaprófsins við 12 mánaða leiðréttan aldur. Dunnett T3 próf var notað til samanburðar á heildarstigum fyrirburanna úr AIMS prófinu við viðmiðunarhóp AIMS prófsins. Eins úrtaks t-próf var notað til að bera saman mælitölur barnanna úr Bayley III prófinu við viðmiðunarmælitöluna 10 sem táknar meðalhreyfiþroska. Fylgnipróf og fjölþátta línulegt aðhvarfsgreiningarlíkan var notuð til að meta tengsl heilsufarsþátta við hreyfiþroska barnanna. \nNiðurstöður: Börn sem uppfylltu þátttökuskilyrði rannsóknarinnar voru 87 talsins. Fyrirburarnir voru með marktækt lægri heildarstig á AIMS í samanburði við viðmiðunarhóp AIMS prófsins við 4-<7, 8-<9 og 12-<13 mánaða leiðréttan aldur og í kringum 12 mánaða leiðréttan aldur á Bayley III prófinu. Engir fylgikvillar eða aðrir heilsufarsþættir höfðu marktæk áhrif á grófhreyfiþroskaútkomu á Bayley III prófinu. \nÁlyktanir: Örburar og fyrirburar með ákaflega lága fæðingarþyngd sýna seinkun í grófhreyfiþroska fyrsta æviár þeirra og eru þar með hópur barna sem mikilvægt er að fylgjast náið með. Sjúkraþjálfun getur verið mikilvæg fyrir þessi börn til að vinna gegn frekari seinkun í hreyfiþroska síðar í barnæsku.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.003 | 0.003 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.003 | 0.002 |
| Bibliometrics | 0.002 | 0.002 |
| Science and technology studies | 0.002 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.001 |
| Open science | 0.003 | 0.001 |
| Research integrity | 0.003 | 0.006 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.004 | 0.009 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".