Leit að fyrirheitna landinu: Samanburður á þremur handbókum fyrir íslenska vesturfara frá árinu 1875
Bibliographic record
Abstract
Í þessari ritgerð er sagt frá þremur handbókum sem voru allar gefnar út árið 1875 og voru ætlaðar sem auglýsingabæklingar fyrir Íslendinga sem höfðu eða gætu haft áhuga á að flytja til Vesturheims (þ.e. í þessu tilfelli til Nýja-Skotlands og núverandi Manitoba í Kanada, eða til Alaska í Bandaríkjanum). Saga 19. aldar einkennist af stórum hópflutningum frá Evrópu til Norður-Ameríku og á árabilinu 1870-1914 fluttu u.þ.b. 15-20 000 Íslendingar vestur um haf. Eins og fyrir aðra hópa innflytjenda til Ameríku voru hinar ýmsu auglýsingar og upplýsingaheimildir grundvallaratriði í umræðum og ákvörðunartöku Íslendinga um flutning. Hvernig var Ameríku lýst í þeim heimildum sem fólk hafði aðgang að og hvers vegna? Hvernig endurspeglar opinber innflytjendastefna Kanada og Bandaríkjanna lýsingarnar í skýrslum og öðrum textum skrifuðum af innflytjendunum sjálfum? Þessar og fleiri spurningar liggja ritgerðinni til grundvallar. \nÍ fyrsta kafla ritgerðarinnar verður stuttlega fjallað um fólksflutninga til Vesturheims almennt og sérstaklega um landnám Íslendinga þar. Næst verður lýst hvaða efnislegar heimildir gagnast til að fá innsýn í innflutningsreynslu íslenskra vesturfara og innflytjendastefnu á þessu tímabili. Í seinni hluta verður fjallað ítarlega um handbækurnar þrjár og borið saman hvernig þær lýsa svæðunum þremur og auglýsa þau fyrir mögulega íslenska landnámsmenn. Einnig verður skoðað hvaða hlutverk handbækur fyrir vesturfara gegndu í stærra samhengi innflytjendastefnu Vesturheims.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.000 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.002 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.152 | 0.006 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".