Mikilvægi fjölskyldna við hjúkrun : viðhorf hjúkrunarfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Bibliographic record
Abstract
Bakgrunnur: Sjúkdómum fylgir oft streita sem getur haft langtímaáhrif á fjölskyldur. Til að lina þjáningu fjölskyldu er mikilvægt að hún sé vel upplýst og taki þátt í meðferð. Samvinna á milli hjúkrunarfræðings og fjölskyldu getur haft jákvæð áhrif á bataferli sjúklings og aukið skilning sem auðveldar þeim að takast á við heilsufarsvanda. Í rannsóknum sem gerðar hafa verið á reynslu og viðhorfum hjúkrunarfræðinga til fjölskylduhjúkrunar hefur komið fram að menntun, starfsreynsla og kunnátta við mat og greiningu fjölskyldna hefur áhrif á notkun fjölskylduhjúkrunar auk jákvæðs hugarfar til fjölskyldna. \nMeginmarkmið rannsóknar er að auka þekkingu og dýpka skilning á viðhorfum hjúkrunarfræðinga á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk) til fjölskylduhjúkrunar fyrir og á meðan á innleiðingu á Calgary fjölskyldumats- og meðferðarlíkaninu stóð yfir. Rannsókninni var ætlað að sjá hvaða hindrandi og hvetjandi þætti og ávinning hjúkrunarfræðingar telja vera í störfum sínum við að beita fjölskylduhjúkrun og hvernig unnið er með fjölskyldum á þeirra deild. \nAðferð: Eigindlegum rannsóknargögnum og bakgrunnsupplýsingum var safnað hjá öllum hjúkrunarfræðingum á öllum deildum SAk í desember 2016. Rannsóknin var endurtekin í mars 2018 úr sama þýði. Alls svöruðu 178 þátttakendur (90,36%) í tíma 1 og 166 þátttakendur (80,89%) svöruðu í tíma 2. Unnið er með svör 87 þátttakenda sem svöruðu rannsókninni við báðar fyrirlagnirnar. Gögnin eru greind með aðferð innihaldsgreiningar. \nNiðurstöður: Helstu hindranir í því að veita fjölskylduhjúkrun eru álagsþættir í starfi, starfsumhverfi og vinnuskipulag. Hvati og ávinningur í starfi eru aukin gæði í sjúkrahússþjónustu. Í vinnu með fjölskyldum eru hjúkrunarfræðingar helst að vinna með vitsmunalega þætti á virknisviði fjölskyldunnar. \nÁlyktanir: Þrátt fyrir tímaskort og álag er hægt með forgangsröðun og skipulagi að veita árangursríka fjölskylduhjúkrun. Samvinna við fjölskyldur gerir hjúkrun markvissari, bætir líðan fjölskyldna og leiðir til farsælli útskrifta. \nLykilorð: Viðhorf hjúkrunarfræðinga, fjölskylduhjúkrun, Calgarylíkan.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.000 |
| Open science | 0.002 | 0.001 |
| Research integrity | 0.001 | 0.002 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.433 | 0.013 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".