Reynsla kvenna með endómetríósu af reglulegri hreyfingu og áhrifum hreyfingar á líðan
Why this work is in the frame
A frame that forgets how it found something cannot be audited. These are the routes that admitted this work.
Bibliographic record
Abstract
Inngangur: Endómetríósa er sjúkdómur sem hrjáir um 10% kvenna í heiminum. Helstu einkenni sjúkdómsins eru verkir og sökum þess kljást margar kvennanna einnig við andlega vanlíðan og lifa við minni lífsgæði en þær sem ekki eru með sjúkdóminn. Sýnt hefur verið fram á að hreyfing geti dregið úr einkennum endómetríósu. Því er áhugavert að skoða hvaða hlutverki hreyfing gegnir í lífi kvenna með endómetríósu. \nMarkmið: Markmið rannsóknarinnar var (1) að rannsaka reynslu kvenna með endómetríósu af hreyfingu og áhrifum reglulegrar hreyfingar á líðan kvenna með endómetríósu, (2) að rannsaka hvað hvetur og/eða hindrar þær til þess að stunda hreyfingu og (3) að athuga hvaða reynslu þær hafa af leiðbeiningum heilbrigðisstarfsfólks varðandi hreyfingu. \nAðferð: Rannsóknin samanstóð af hálfstöðluðum eigindlegum rannsóknarviðtölum sem byggðust á Vancouver-skólanum í fyrirbærafræði. Tekin voru níu viðtöl við jafnmargar konur með staðfesta greiningu á endómetríósu og sem stunduðu reglulega hreyfingu. \nNiðurstöður: Rauði þráður viðtalanna var upplifun þátttakanda af hreyfingu, hver væri þeirra hvatning til að hreyfa sig og hvað hindraði þær. Reynsla kvennanna var margþætt og var greiningu gagna skipt í fjóra þætti sem síðar voru þemagreind. Þeir þættir voru: Hreyfing innan marka, hvatar, hindranir og leiðbeiningar varðandi hreyfingu. Hvatar til að stunda hreyfingu skiptust í þemun: góð andleg líðan, góð líkamleg líðan, félagsskapur og partur af daglegu lífi. Hindarnir við að stunda hreyfingu skiptust í þemun: líkamleg vanlíðan, andleg vanlíðan og ytri þættir. Leiðbeiningar varðandi hreyfingu skiptust í þemun: leiðbeiningar, engar leiðbeiningar og leiðir til úrbóta. \nÁlyktun: Auka þarf leiðbeiningar varðandi hreyfingu til kvenna með endómetríósu og leggja áherslu á þá þætti sem hvetja þær til hreyfingar. Einnig þarf að taka fram mikilvægi þess að finna sín mörk svo ávinningur hljótist af hreyfingunni. Mögulegt er að niðurstöður þessarar rannsóknar geti nýst sem grunnur fyrir megindlega rannsókn.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.001 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.001 | 0.001 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.001 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.000 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.000 |
| Scholarly communication | 0.000 | 0.000 |
| Open science | 0.001 | 0.000 |
| Research integrity | 0.001 | 0.001 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.003 | 0.002 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from it