Aðalmálið að maður hlúi að sjálfum sér : reynsla hjúkrunardeildarstjóra af álagi og áskorunum í starfi og bjargráðum í því samhengi
Bibliographic record
Abstract
Hjúkrunardeildarstjórar á Íslandi starfa við aðstæður sem einkennast af kröfum um öryggi og gæði heilbrigðisþjónustu, samhliða atgervisflótta hjúkrunarfagfólks. Lítil athygli er á þætti sem geta verið þeim bjargráð og stuðningur. Fyrri rannsóknir benda til að stuðningur næstu yfirmanna er oft takmarkaður. Hérlendis og erlendis liggur fyrir lítil gagnreynd þekking um reynslu hjúkrunardeildarstjóra og bjargráð við krefjandi aðstæður. Mikilvægt er að varpa ljósi á efnið þar sem hjúkrunardeildarstjórar eru þýðingarmikill hlekkur í skipulagi og árangri heilbrigðisstofnana. Með fyrirbærafræðilegri aðferð Vancouver-skólans voru tekin hálfstöðluð viðtöl við sextán hjúkrunardeildarstjóra sem störfuðu innan heilbrigðisstofnana á Íslandi vorið 2018, í þeim tilgangi að auka þekkingu á reynslu hjúkrunardeildarstjóra á Íslandi af álagi og áskorunum í starfi og bjargráðum í því samhengi. \nNiðurstöður komu fram í fjórum meginþemum. Maður fer aldrei úr þessari kápu vísar til starfs hjúkrunardeildarstjóranna sem þær sögðu umfangsmikið og ábyrgðina takmarkalausa. Þú ræður eiginlega ekki þó þú ráðir vísar til starfsumhverfis þeirra, þar sem þær ráða starfinu en ráða þó litlu um eðli og ákvarðanir yfirstjórnenda. Það sést þegar manni líður vel vísar til líðanar í starfi, sem er ýmist vellíðan og sátt í starfi eða örmögnun og ósátt. Maður þarf að vera viðbúin hreinlega öllu vísar til reynslu hjúkrunardeildarstjóranna af bjargráðum til að takast á við starfið. Undirstöðubjargráðið endurspeglast í meginniðurstöðu rannsóknarinnar; að aðalmálið er að hlúa að sjálfum sér. Niðurstöður rannsóknarinnar eru í samræmi við fyrirliggjandi þekkingu á sviðinu, en nýmæli rannsóknarinnar er reynsla hjúkrunardeildarstjóranna af mikilvægi þess að annast um sjálfa sig til að geta tekist á við krefjandi aðstæður í starfi. \nNiðurstöðurnar fela í sér vísbendingar um að með tileinkun bjargráða sem fela einkanlega í sér að hlúa að sér, er mögulegt að öðlast sátt, ná árangri og líða vel í starfi sem krefst mikils á sama tíma og það gefur mikið. \nLykilorð: Hjúkrunardeildarstjóri, álag, áskoranir, bjargráð.
Fetched live from OpenAlex and de-inverted. Abstracts are not stored in this database: the inverted indexes are 8.6 GB of the frame’s 9.3 GB of text, and the host has 13 GB free.
How this classification was reachedexpand
Full frame distilled prediction
Teacher imitationNot calibrated prevalence, not ground truth. Human validation pending. Learned from the 10,348 direct Codex labels and 10,348 direct Gemma labels. Candidate is the union of thresholded teacher heads; consensus is their intersection. These outputs are machine_predicted_unvalidated and are not human labels or direct frontier model labels.
Codex and Gemma teacher scores by category
| Category | Codex | Gemma |
|---|---|---|
| Metaresearch | 0.002 | 0.000 |
| Meta-epidemiology (narrow) | 0.002 | 0.002 |
| Meta-epidemiology (broad) | 0.002 | 0.001 |
| Bibliometrics | 0.001 | 0.001 |
| Science and technology studies | 0.001 | 0.001 |
| Scholarly communication | 0.001 | 0.000 |
| Open science | 0.003 | 0.001 |
| Research integrity | 0.001 | 0.003 |
| Insufficient payload (model declined to judge) | 0.331 | 0.010 |
Machine scores (provisional)
The two teacher heads of the student model, read on this work. A score orders the frame for review; it never asserts a category, and the validation status ships verbatim with every row.
Baseline scores from an immature model (maturity gate not passed, 7 training rounds). Scores rank; they never assert a category.
score_only:v0-immature-baseline · verbatim from the scoring run: score_only means the number may rank works, and no category label ships from itClassification
machine, unvalidatedMachine predicted; both teacher heads agree on what is shown here.
How this classification was reached, model by model and score by score, is at the end of the page under "How this classification was reached".